Sérstök keppni
ASCA — Airline Staff Championship Awards
ASCA eru íþrótta- og menningarsamtök starfsmanna flugfélaga í Evrópu.
Hvað er ASCA?
ASCA stendur fyrir Airline Staff Championship Awards og er alþjóðleg golf keppni fyrir starfsmenn flugfélaga. Mynduð árið 1987 til að efla samkeppni og félagsskap meðal starfsfólks í flugiðnaðinum.
Uppbygging keppninnar
Send eru karla- og kvennalið til keppni í ASCA mótunum ár hvert. Karlalið inniheldur 6 leikmenn og kvennalið 4 leikmenn.
Hvernig tekur þú þátt?
Allir félagsmenn sem eru starfsmenn Icelandair eða tengdra félaga geta keppt í ASCA. Skráning fer fram í gegnum venjulega mótsskráningu. Þetta alþjóðlega mót er eingöngu fyrir starfsmenn Icelandair Group en ekki maka.
Reglur vegna vals á liði
Fyrir karlalið gildir:
Fimm efstu á mótaröðinni í punktakeppni án forgjafar vinna sér sæti í liðinu. Sigurvegarinn á meistaramótinu í höggleik (Klúbbmeistarinn) tekur svo síðasta sætið. Ef klúbbmeistarinn var meðal fimm efstu á mótaröðinni þá skal velja þann sem er næstur í mótaröðinni.
Fyrir kvennalið gildir:
Þrjár efstu á mótaröðinni í punktakeppni án forgjafar vinna sér sæti í liðinu. Sigurvegarinn á meistaramótinu í höggleik (Klúbbmeistarinn) tekur svo síðasta sætið. Ef klúbbmeistarinn var meðal þriggja efstu á mótaröðinni þá skal velja þá sem er næst á mótaröðinni.
Ef leikmenn eru jafnir á ASCA punktalistanum:
1. Punktafjöldi í 4. besta hring. Ef enn jafnt, þá: 2. Punktafjöldi í 5. besta hring. Ef enn jafnt, þá: 3. Skipuleggja skal einvígi á golfvelli milli leikmanna, þar sem keppt er í punktakeppni án forgjafar á hlutlausum velli.
