Nýir meðlimir
Vertu með okkur!
Skráðu þig í Golfklúbb starfsmanna Icelandair
Nýir meðlimir
Til þess að halda utanum meðlimi klúbbsins er notast við félagakerfi frá Cloud4Club. Athugið að skráning í klúbbinn veitir ekki aðild að GSÍ. Ef þú notar Mitt golf þá er nauðsynlegt að nota sama netfang og notað er þar.
Eftir nýskráningu er farið í innskráningu, þar eru uppfærðar upplýsingar ef t.d. ef maki er í klúbbnum ásamt félaganúmeri. Beðið er samþykktar (gæti tekið nokkra daga), krafa er stofnuð í Cloud4Club og um leið og hún er greidd birtist félagsskírteinið á Cloud4Club vefnum.
Eftir fyrsta ár í klúbbnum verður félagsgjaldið skuldfært af launum næsta árs (yfirleitt í febrúar/mars). Þeir sem eru komnir á eftirlaun greiða í gegnum Cloud4Club. Þeir starfsmenn sem hafa látið af störfum vegna aldurs og makar þurfa einnig að skrá sig í gegnum vefinn.
Leiðbeiningar um skráningu á félaganúmeri
Mælst er til þess að nota GSI/GOLFBOX (Mitt golf) númerið ykkar í FELAGANUMER inn á ykkar síðum á cloud4club.com. Félagaspjald/breyta prófíl. Ekki skrifa neitt annað en klúbbanúmerið
og félaganúmerið, t.d. er GR með númer 7. Þá á að skrifa 7- og svo númerið, (7-1234). Ekkert IS fyrir framan.
Við sendum félagalista GIG á vinavellina okkar og til að geta fengið umsaminn afslátt á vallargjaldi þarf viðkomandi klúbbur að hafa þær upplýsingar. Þetta hljómar flókið en er það alls ekki. Ef einhverjar spurningar vakna eða þið eruð í vandræðum með þetta á golfklúbburinn ykkar að geta leiðbeint ykkur. 😊
Hvað fylgir með?
⛳
Aðgangur að öllum mótum
7+ mót yfir sumarið á fyrsta flokks völlum
🎁
Aðgangur að vinavöllum
Sérkjör hjá vinavöllum og samstarfsaðilum
🏆
ASCA keppni
Möguleiki á þátttöku í ASCA mótinu
🤝
Félagsskapur
Njótum þess að spila golf í góðra vina hópi
💳 Félagsgjald: 7.000 kr. á ári
