Um félagið

Um Golfklúbbinn

Stjórn, skýrslur og upplýsingar um félagið

Lög Golfklúbbs Icelandair Group

1. grein

Klúbburinn heitir Golfklúbbur Icelandair Group, skammstafað GIG. Tilgangur og markmið er að efla kynni starfsmanna Icelandair Group og dótturfélaga sem áhuga hafa á golfi og að glæða og viðhalda áhuga á golfíþróttinni. Klúbburinn stendur fyrir golfæfingum, golfmótum og annarri félagsstarfsemi sem tengist íþróttinni. Stjórnin skal rækta samband við klúbbfélaga og í upphafi starfsárs skal hún gefa út dagsskrá starfsársins sem innihalda skal m.a. mótadagskrá hérlendis sem erlendis, reglugerð fyrir mótshaldi, kennslufyrirkomulagi ef það er fyrir hendi o.s.fr.

2. grein

Golfíþróttina skal stunda samkvæmt reglum “The Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews” eins og þær eru á hverjum tíma. Sérreglur setur stjórnin eftir því sem þurfa þykir. Sérhver félagi er skyldur að fara eftir þeim reglum sem stjórnin setur. Slæm umgengni og framkoma á golfvelli getur valdið brottvikningu úr klúbbnum.

3. grein

Um inngöngu í klúbbinn skal sækja skriflega. Inntaka nýrra félaga er háð samþykki stjórnar.
Úrsögn er bundin við áramót, og berist hún skriflega til stjórnar fyrir lok desember. Fyrrverandi starfsmenn er látið hafa af störfum aldurs vegna er heimiluð full aðild að klúbbnum. Makar starfsmanna hafa rétt til að vera meðlimir í klúbbnum.
Hætti starfsmaður hjá Icelandair Group telst hann og maki hans gengin úr félaginu. Ekki á sá sem gengur úr félaginu neina kröfu á hendur GIG um endurgreiðslu á greiddum félagsgjöldum.

4. grein

Aðalfundur ákveður árgjald næsta starfsárs að fenginni tillögu stjórnar. Gjalddagi er 1. mars ár hvert sem innheimt er af febrúarlaunum starfsmanns. Þeir aðilar sem ekki eru á launaskrá eiga kost á að fá gíróseðil í heimabanka, þ.m.t eru þeir aðilar sem látið hafa af störfum vegna aldurs.
Stjórnin ákveður þátttökugjald í kappleikjum klúbbsins. Farandverðlaun skulu vera í vörslu sigurvegara hverju sinni.

5. grein

Stjórn klúbbsins skipa 5 félagar; Formaður og 4 meðstjórnendur. Þeir skulu kosnir á aðalfundi. Formaður skal kosinn sérstaklega til eins árs í senn. Aðrir stjórnarmenn skulu kosnir til 2ja ára í senn. Stjórnarmenn má endurkjósa gefi þeir kost á sér, eitt ár í senn.
Stjórn getur útnefnt eins marga meðlimi og þurfa þykir í varastjórn félagsins.
Kjósa skal skoðunarmann.

6. grein

Stjórn klúbbsins fer með æðsta vald í öllum málefnum hans milli aðalfunda. Stjórnin ákveður sjálf starfstilhögun sína. Hún getur ráðið sér launaða aðstoð en vinnur sjálf ólaunuð. Stjórnin kemur fram fyrir klúbbsins hönd í fullu umboði hans í öllum málum sem hann varða.

7. grein

Aðalfundur er æðsta úrskurðarvald í öllum málefnum klúbbins. Hann skal halda í janúar ár hvert. Á öðrum tímum ársins getur stjórnin boðað til almenns félagsfundar ef henni þykir henta eða fimmtán félagar æskja þess skriflega með rökstuðningi. Slíkan fund skal halda innan 3ja vikna frá móttöku slíkrar beiðni. Aðalfund og aðra félgasfundi skal auglýsa með viku fyrirvara. Í fundarboði skal tilgreina dagskrá. Tillögur til lagabreytinga skulu hafa borist stjórn fyrir áramót og skulu þær kynntar í aðalfundarboði.

8. grein

Reiknisár klúbbsins er frá 1. janúar til 31. desember. Endurskoðaðir reikningar klúbbsins skulu lagðir fyrir aðalfund til samþykktar.

9. grein

Þessi eru störf reglulegs aðalfundar;

  1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir eftir tillögu stjórnar.

  2. Fundargerð síðasta aðalfundar lesin.

  3. Skýrsla stjórnar um störf á liðnu starfsári.

  4. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykktar.

  5. Ákveða skal árgjald til klúbbsins til eins árs í senn.

  6. Kosning stjórnar og skoðunarmanns.

  7. Önnur mál

10. grein

Aðalfundur er löglegur og ályktunarhæfur um öll málefni klúbbsins sé löglega til hans boðað. Afl atkvæða ræður úrslitum á fundinum. Atkvæðisrétt hafa allir fullgidir félagar klúbbsins. 2/3 hluta atkvæða þarf til að samþykkja breytingar á lögum.

11. grein

Sérstakur fundur þarf að ákveða hvort klúbburinn hætti starfsemi. Til að þær ákvarðanir teljist lögmætar þurfa a.m.k. 20 félagsmanna að vera á fundinum og 2/3 þeirra að samþykkja tillögur þess efnis. Sé þátttaka ekki næg má boða til nýs fundar innan þriggja vikna og er hann ályktunarhæfur um þetta mál sé hann löglega boðaður enda þótt fyrrgreindri fundarþáttttöku sé ekki náð.

12. grein

Sérstakar reglur varðandi ASCA lið GIG:
a. Einungis starfsmenn (ásamt eftirlaunaþegum) geta unnið sér sæti í liði ASCA.
b. Klúbbmeistari GIG ár hvert er sjálfkjörinn þátttakandi í ASCA næstkomandi ár.
c. Fimm efstu karlar án forgjafar í þremur bestu punktamótum sumarsins ár hvert eru sjálfkjörnir þátttakendur í ASCA næstkomandi ár.
d. Þrjár efstu konur án forgjafar í þremur bestu punktamótum sumarsins ár hvert eru sjálfkjörnar þáttakendur í ASCA næstkomandi ár.
e. Ef GIG ákveður að senda 2 karla- og/eða 2 kvennalið, þá gildir sama regla við val á liðum eins og kemur fram í lið a og b, nema þá eru það ellefu efstu karlar og 7 efstu konur.
f. Liðstjóri skal valinn af formanni GIG og skal hann vera einn af liðsmönnum ASCA liðsins.
g. Liðstjóra ber að velja sterkustu spilara (að hans mati) til að spila saman í keppninni. Hann má leita aðstoðar liðsmanna.

Sjá nánar reglur um ASCA

13. grein

Lög þessi voru samþykkt á aðalfundi GIG þann 12 janúar 2023 og öðlast þegar gildi.

Reglur varðandi val á ASCA liði

Send eru karla og kvennalið til keppni í ASCA mótunum ár hver. ASCA eru íþrótta- og menningarsamtök starfsmanna flugfélaga í Evrópu.

Fyrir karlalið gildir eftirfarandi:
Fimm efstu á mótaröðinni í punktakeppni án forgjafar vinna sér sæti í liðinu. Sigurvegarinn á meistaramótinu í höggleik (Klúbbmeistarinn) tekur svo síðasta sætið. Ef klúbbmeistarinn var meðal fimm efstu á mótaröðinni þá skal velja þann sem er næstur í mótaröðinni.

Fyrir kvennaliðið gildir eftirfarandi:
Þrjár efstu á mótaröðinni í punktakeppni án forgjafar vinna sér sæti í liðinu. Sigurvegarinn á meistaramótinu í höggleik (Klúbbmeistarinn) tekur svo síðasta sætið. Ef klúbbmeistarinn var meðal þriggja efstu á mótaröðinni þá skal velja þá sem er næst á mótaröðinni.

Ef leikmenn eru jafnir á ASCA punktalistanum þá skal nota eftirfarandi reglu til að velja í liðið:

  1. Punktafjöldi í 4. besta hring. Ef enn jafnt, þá:

  2. Punktafjöldi í 5. besta hring. Ef enn jafnt, þá:

  3. Skipuleggja skal einvígi á golfvelli milli leikmanna, þar sem keppt er í punktakeppni án forgjafar á hlutlausum velli.

© 2026 Golfklúbbur starfsmanna Icelandair · golfklubbur@icelandair.is · Öll réttindi áskilin

© 2026 Golfklúbbur starfsmanna Icelandair ·
golfklubbur@icelandair.is · Öll réttindi áskilin